Dynapac hefur verið leiðandi, allt frá stofnun fyrirtækisins 1934, í framleiðslu á tækjabúnaði fyrir malbiksútlagningu, jarðvegs og malbiksþjöppun, ásamt tækjum fyrir steinsteypu, þ.e.a.s. vibratorum og pússiþyrlum.
Fyrirtækið hefur ávalt haft að leiðarljósi vandaða framleiðslu og frábæra þjónustu. Dynapac verksmiðjurnar eru staðsettar víða um heiminn, í Svíþjóð, Þýskalandi, Frakklandi, Brasilíu, Bandaríkjunum og Kína.
Höfuðstöðvarnar eru í Malmö í Svíþjóð, þar sem þjálfun og rannsóknarvinna fer fram. Dynpacverksmiðjurnar spara hvergi til að vera fremstar í allri tækni og þróunarvinnu.