19.5.2010
Kraftvélar ehf ganga frá umboðssamningi við CNH (New Holland)
Fyritækið CNH er leiðandi framleiðandi dráttarvéla undir merkjum New Holland, Case IH og Steyr.
Eftir að fyrrverandi umboðsaðili CNH fór í þrot á síðasta ári, var óskað eftir því við Kraftvélar ehf að það tæki að sér varahlutaútvegun og viðgerðarþjónustu fyrir dráttarvélar sem CNH framleiðir.
Í framhaldi af þessari samvinnu var svo undirritaður umboðssamningur milli fyrirtækjana, nú á dögunum. Samningurinn tekur yfir sölu og markaðssetningu nýrra dráttarvéla og heyvinnutækja frá CNH ásamt sölu varahluta og viðgerðaþjónustu. Stutt er í að sendingar nýrra dráttarvéla komi til landsins og munu Kraftvélar leitast við að bjóða bændum og öðrum dráttarvélanotendum vel búnar vélar á samkeppnisfæru verði. Fyrirtækið hefur einnig bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða bændum vélar til leigu í lengri eða skemmri tíma. Kraftvélar eru þessa dagana að bjóða eigendum New Holland, Case IH og Steyr heimsóknir til að yfirfara tæki þeirra fyrir sumarið.
New Holland hefur verið söluhæsta dráttarvélin á Íslandi til margra ár. Þessar vel þekktu vélar eru framleiddar í Basildon í Bretlandi, einu verksmiðunni sem framleiðir dráttarvélar þar í landi og svo einnig í Jesi á Ítalíu.
Case IH eða Nallinn eins og margir þekkja hann er nú framleiddur í Austurríki, þar sem áður voru framleiddar Steyr dráttarvélarnar. Vel á annað þúsund Case IH dráttarvélar eru til í landinu enda hefur þessi vélartegund verið með þeim vinsælustu í gegnum tíðina.
Kraftvélar er þekktasta fyrirtæki í sölu á vinnuvélum á landinu í dag. Það hefur umboð fyrir Komatsu vinnuvélar, Sandvik brjóta og hörpur, Dynapac valtara og fleiri tækjum frá þekktum framleiðendum vinnuvéla. Nú hefur fyritækið ákveðið að hasla sér völl í landbúnaðarvélasölu. Til staðar er margra ára reynsla í þjónustu hverskona véla og tækja og víðtæk þekking í viðgerðum ásamt einu best búna viðgerðarverkstæði á landinu. Kraftvélar mun leggja metnað sinn í að þjónusta bændur eins vel og unt er og bíður þá velkomna í stóran hóp viðskiptamanna fyrirtækisins.
Atvinnutæki:
Landbúnaðartæki: