ÞJÓNUSTUDEILD
Á verkstæði Kraftvéla starfa nú yfir 10 starfsmenn sem eru sérhæfðir
í viðgerðum á öllum okkar vörumerkjum. Við höfum yfir að státa fjölda
vélvirkja, bifvélavirkja, rafvirkja og rafeindarvirkja sem allir hafa
áralanga reynslu í viðhaldi og viðgerðum á vinnuvélum og lyfturum.
Veljir þú að eiga við okkur viðskipti, þá ertu að tryggja þér líklega bestu fáanlegu þjónustu sem í boði er á okkar markaði.
Eftir áralöng viðskipti við viðskiptamenn okkar vitum við að
þjónustan er það sem skiptir máli. Tækin okkar hafa marg sannað gildi
sitt hvað varðar gæði, endingu, notkun og endursölu og því skilur
þjónustan á milli okkar og okkar samkeppnisaðila.
Kraftvélar bjóða nú viðskiptavinum sínum framlengda ábyrgð gegn sanngjörnu gjaldi og er innifalið í þeirri ábyrgð þrjár stórar skoðanir með efni og vinnu.
Einnig bjóðum við þjónustusamning sem innifelur
í sér reglubundið eftirlit með það að markmiði að draga úr óvæntum
bilunum, tryggir rekstur og rekstrarkostnað tækisinns og eykur það
einnig endursöluverð tækjanna.
Það nýjasta sem við erum að bjóða er smurþjónusta, en Kraftvélar bjóða viðskiptavinum að gera smurþjónustusamninga þar sem
við smyrjum tækið og tökum olíusýni af skiptingu, drifum og mótor sem
send eru til rannsóknar til að fyrirbyggja ófyrirséðar og
kostnaðarsamar bilanir.
Kynntu þér málið, hafðu samband við þjónustudeild okkar og leyfðu okkur að gera þér tilboð í þjónustu.
ÞAÐ KOSTAR EKKI NEITT.