
Zuidberg - framlyftur og aflúrtök
Framlyftibúnaður og aflúrtök á dráttarvélar er sérgrein Zuidberg Frontlines Systems en þeir framleiða búnaðinn fyrir allar gerðir og stærðir dráttarvéla. Zuidberg er þekktasti framleiðandi þessarar vöru í Evrópu.
Margir framleiðendur dráttarvéla nota frambúnaðinn frá Zuidberg í sína framleiðsluvöru, sem er þá settur á í verksmiðjum þeirra og kemur til kaupanda sem original búnaður.
Kraftvélar ehf bjóða frambúnað á allar gerðir dráttarvéla.
Heimasíða Zuidberg er
www.zuidberg.nl