Vélar & Þjónusta ehf
Um miðjan október 2009 keyptu eigendur Kraftvéla, þeir Ævar Þorsteinsson og Eiður Haraldsson, rekstur Véla & Þjónustu og ráku fyrirtækið áfram á Járnhálsi í nokkra mánuði.
Um vorið 2010 var svo ákveðið að sameina rekstur þessara tveggja fyrirtækja, og var því ákveðið að flytja rekstur Véla & Þjónustu niður á Dalveg 6-8 þar sem Kraftvélar hafa verið með sinn rekstur í 13 ár.
Þessi kaup voru fyrstu skref Kraftvéla inn á svið landbúnaðar á Íslandi, en í dag eru Kraftvélar stoltur umboðsaðili fyrir New Holland og Case IH landbúnaðarvélar.