Ertu sölumaður í þér?

Við hjá Kraftvélum leitum að sölumanni í varahlutaverslun okkar. Starfið felst í sölu og afgreiðslu á varahlutum, aukahlutum og verkstæðisþjónustu Kraftvéla.

Varahlutaverslun Kraftvéla sérhæfir sig í að útvega varahluti í allar tegundir vinnuvéla, lyftara og landbúnaðartækja.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Sala og afgreiðsla á varahlutum
Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina
Skipulagðar heimsóknir á vinnusvæði viðskiptavina
Skipulögð símtöl til viðskiptavina að bjóða þeim þjónustu Kraftvéla
Þátttaka í öðrum tilfallandi verkefnum

Menntunar- og hæfnikröfur:
Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og vera jákvæður
Þarf að hafa gott frumkvæði í starfi
Hæfileikar til að geta unnið undir álagi
Almenn þekking á vinnuvélum og landbúnaðartækjum mikill kostur
Góð almenn tölvukunnátta
Góð samskiptafærni á íslensku og ensku
Lágmarksaldur 20 ár

Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Ágústsdóttir í gegnum netfangið johanna@kraftvelar.is

Áhugasamir sendi umsókn fyrir 21. september á netfangið starf@kraftvelar.is
Öllum umsóknum verður svarað.