Kraftvélar er umboðsaðili fyrir Grove bílkrana og Potain byggingakrana.
Potain byggingakranar ættu að vera öllum byggingaverktökum vel kunnugir, enda vel þekktir og með langa sögu hér á landi. Byggingakranarnir eru fáanlegir í öllum stærðum og gerðum, allt að 8 tonna lyftigetu í sjálfreisandi krönum og upp í 80 tonna lyftigetu í turnkrönum.
Grove bílkranar eru líklega þekktustu bílkranar hér á landi enda mest innfluttu bílkranar á Íslandi frá upphafi skráninga hjá Vinnueftirliti Ríkisins. Kranarnir eru fáanlegir með lyftigetu frá 30 tonnum upp í allt að 450 tonnum.