Við óskum eftir að ráða starfsmann á þjónustuverkstæði

Við leitum að vinnusömum, metnaðarfullum og framsæknum vélvirkja, bifvélavirkja, rafeindavirkja eða rafvirkja sem hefur áhuga á að takast á við krefjandi og spennandi verkefni á verkstæðinu okkar.

Helstu verkefni og ábyrgð:
  • Almenn viðgerðarvinna á verkstæði
  • Vinna við þungavinnuvélar, lyftara og dráttarvélar
  • Viðgerðir sem þarfnast rafmagnsþekkingar
Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Vélvirkja- rafeindavirkja- rafvirkja- eða bifvélavirkjamenntun
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og heiðarleiki
  • Stundvísi, ósérhlífni og sveigjanleiki
  • Rík þjónustulund og frumkvæði í starfi.

Vinnutími: Mán-fim 08:00-17:00 og fös 08:00-15:00

Fullt starf
Góð laun í boði fyrir réttan einstakling

Áhugasamir sendi umsókn fyrir á netfangið starf@kraftvelar.is.