Sjálfvirkir lyftarar – öruggari og skilvirkari vöruflutningar
Sjálfvirkir lyftarar eru öflug lausn fyrir fyrirtæki sem vilja einfalda vöruflutninga, auka afköst og draga úr kostnaði. Með sjálfvirkri flutningatækni er hægt að sinna endurteknum flutningsverkefnum á öruggan og nákvæman hátt, allan sólarhringinn ef þörf krefur.
Tækin fylgja fyrirfram skilgreindum leiðum og flytja vörur á milli staða án þess að starfsmaður þurfi að stjórna þeim. Þannig má nýta starfsfólk betur í önnur verkefni, draga úr óþarfa umferð á vinnusvæðum og skapa jafnara og skilvirkara vöruflæði.
Sjálfvirkar lausnir henta meðal annars vel í vöruhúsum, framleiðslu, dreifingarmiðstöðvum og öðrum starfsstöðvum þar sem sömu flutningar eru framkvæmdir reglulega.
Helstu kostir sjálfvirkra lyftara:
- Minni þörf fyrir mannafla við endurtekin flutningsverkefni
- Aukið öryggi á vinnusvæðum
- Stöðug og fyrirsjáanleg afköst
- Minni hætta á mistökum og skemmdum
- Betri nýting á starfsfólki
- Hægt að samþætta lausnina við núverandi vöruflæði
- Auðvelt að stækka kerfið eftir því sem starfsemin vex
Á heimasíðu framleiðanda er hægt að lesa sig enn betur til um sjálfvirka Toyota lyftara:
