New Holland T5 DCT er ein af glæsilegustu nýjungunum sem hafa komið á markaðinn í dráttarvélabransanum. Hér er rými og afl í fyrirrúmi ásamt því að vera með DCT gírkassann sem samkvæmt DLG er sá sparneytnasti á markaðnum. 630 Nm tog er fáheyrt í þessum stærðarflokki en stærsta vélin í línunni skilar 140 hestöflum ásamt því að skarta þessum gríðarlega mikla togkrafti.
Það sem framleiðendur dráttarvéla þurfa að horfa til á næstu árum er að lækka notkun hráolíu. Það sem eftir stendur er að ná fram hagræðingu í driflínu dráttarvélarinnar. Það er þess vegna sem New Holland lagðist yfir það að hanna nýjan gírkassa sem þennan. Það er langur aðdragandi þegar verið er að hanna gírkassa, það gerist hvorki á mánuði né ári.
DCT gírkassinn byrjaði á tilraunastigi um aldamótin og var svo settur í fyrstu vélina árið 2016. New Holland passar upp á að vera búinn að rannsaka, þróa og prófa alla hluti áður en þeir koma á markaðinn. Síðan þessi DCT gírkassi kom á markað hafa aðrir framleiðendur hamast við að hanna svipaðan gírkassa, það hefur þó enginn gírkassi sópað að sér eins miklum verðlaunum og umtali á síðustu árum eins og þessi.
Við eigum þónokkrar svona vélar í pöntun fyrir þetta ár og nú þegar hafa nokkrir góðir New Holland áhugamenn fest sér slíkar vélar.
SEM DÆMI UM BÚNAÐ Í ÞESSUM VÉLUM MÁ NEFNA:
Mótor
· 4 cyl. 4.5L, 140 Hp FPT / New Holland mótor sem skilar 630 Nm í togi
· Olíutankur 180 L og 19 L AdBlue
· Undirakstursvörn úr stáli á botni tanka
Gírkassi
· Kúplingsfrír vendigír
· Stop / Go kerfi á skiptingu, getur stoppað vél á bremsupedala
· Dynamic Command 24×24 gírkassi með sjálfskiptimöguleika
· 40 km „Eco speed“ ökuhraði, hámarksökuhraða náð á 1790 sn/mín á mótor
Ökumannshús
· DOG skjár á armpúða sem sýnir í hvaða gír vélin er í
· Vélin er með nýrri útgáfu af húsi, heillglugga fyrir aukið útsýni og fjöðrun á húsi
· Rúðuþurrka að framan með 210° yfirferð
· Ökuljós og 8 stk. LED vinnuljós til að hámarka birtu
Vökvakerfi
· Load sensing vökvakerfi, 110 L dæla
· 4 tvívirkar vökvaspólur aftan
· Útskjótanlegur dráttarkrókur
Aflúttak
· 3 hraðar í aflúttak að aftan, 1000 / 540E / 540
· Takki á afturbretti til að virkja aflúttak
Dekk
· Dekk framan 480/65R24, lokaðar felgur
· Dekk aftan 600/65R34, lokaðar felgur



