Sölustjóri landbúnaðartækja

Við leitum að vinnusömum, metnaðarfullum og framsæknum sölustjóra landbúnaðartækja sem hefur
áhuga á að takast á við krefjandi og spennandi framtíðarstarf. Sölustjóri landbúnaðartækja er ábyrgur
fyrir vörumerkjum eins og New Holland, CaseIH, Weidemann og Pöttinger, svo eitthvað sé nefnt.

Starfssvið:

  • Ber ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi söludeildar landbúnaðartækja
  • Yfirumsjón með verðlistum, tilboðsgerð og uppítökum notaðra tækja
  • Ber ábyrgð á gerð söluáætlana og eftirfylgni þeirra í samstarfi við framkv.stjóra sölusviðs.
  • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Heimsóknir til viðskiptavina víðsvegar um landið
  • Samskipti við erlenda birgja og pantanir til þeirra
  • Ferðalög erlendis á sýningar eða heimsækja birgja

Hæfniskröfur:

  • Þekking á landbúnaðartækjum eða landbúnaði almennt
  • Stjórnunarhæfileikar
  • Rík þjónustulund og frumkvæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og heiðarleiki
  • Útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð
  • Almennt góð tölvukunnátta
  • Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli

Áhugasamir sendi umsókn fyrir 15. október á netfangið
starf@kraftvelar.is. Öllum umsóknum verður svarað.

Standsetning nýrra og notaðra tækja

Við leitum að vinnusömum aðila til að starfa innan sölusviðs Kraftvéla að vinna í kringum
lyftara, vinnuvélar og landbúnaðartæki. Þetta starf gæti hentað vel fyrir aðila sem eru
vanir viðgerðum en vilja komast í rólegra umhverfi og smærri viðgerðir.

Starfssvið:

  • Almenn standsetning nýrra og notaðra tækja
  • Smærri og einfaldari viðgerðir
  • Þrif á nýjum og notuðum tækjum
  • Smærri útlitsviðgerðir eins og að sparsla og mála notuð tæki
  • Smurþjónusta tækja

Hæfinskröfur:

  • Reynsla af viðgerðum
  • Stundvísi, ósérhlífni og sveigjanleiki
  • Rík þjónustulund og frumkvæði í starfi
  • Bílpróf
  • Vinnuvélaréttindi mikill kostur

Áhugasamir sendi umsókn fyrir 15. október á netfangið
starf@kraftvelar.is. Öllum umsóknum verður svarað.